Map
himnaljós

Gisting, veislur og fundir í sveitasælunni 

Í Eyrarkoti  er aðstaða fyrir tíu manns í gistingu og er tilvalið fyrir smærri hópa og einstaklinga sem vilja komast í friðsæld, ró og sveitastemningu. Stutt er í veiði í Meðalfellsvatn og Hvammsvík  Eyrarkot er vel í sveit sett . Stutt er í fjöru  neðan bæinn, sem er vinsælt útivistasvæði, þar er mjög fjölbreytt fuglalíf og mikil náttúruparadís einnig eru sjávarföll mjög áberandi. Í kringum Eyrarkot er að finna stóra og fjölbreytta byggð álfa og huldufólks og boðið er  uppá sérstakar göngur um það svæði með leiðsögn.

Húsið er leigt út með uppbúnum rúmum og/eða fyrir svefnpoka.og eins er þráðlaus nettenging , stórt útigrill og góð aðstaða til borðhalds.
Salur er í boði til mannfagnaða, fyrirlestra, og námskeiðahalds fyrir allt að 50 manns

Hægt er panta  máltíðir og morgunmat fyrir hópa og einstaklinga.

Nánari upplýsingar og gistipantanir

eru í síma 6923025 og í netfanginu begga@emax.is

hvaljfordur-paskar-vefur

Dagskrá

Bændagisting
sólstofa
Kjósin

Kjósin - Heill heimur handan Esjunnar

Upplýsingabæklingur

Eyrarkot - Kjós - +354 -6923025 -begga@emax.is